KFC Mót Víkings

KFC og barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Víkings standa að einu vinsælasta og flottasta knattspyrnumóti landsins á hvert, KFC-mótinu í Víkinni, fyrir stráka og stelpur í 7. flokki. Þetta er yfirleitt fyrsta mót yngstu iðkenda knattspyrnunnar og því mikill viðburður í lífi krakkanna og aðstandenda þeirra!
Samstarf Víkings og KFC hófst árið 2003 og samkomurnar hafa stækkað á alla kanta, ár frá ári. Þannig voru liðlega 1.000 iðkendur á KFC-mótinu 1. og 2. maí 2010, um 600 strákar fyrri daginn en um 400 stelpur síðari daginn. Annað foreldri eða bæði foreldrar fylgja yfirleitt barninu sínu til leiks og því má ætla að á þriðja þúsund gesta hafi komið í Víkina á mótið 2010.
KFC leggur mótinu til verðlaunapening fyrir hvern þátttakanda og kjú
klingaveislu í leikslok. Þetta er mikil ,,aksjón“ hjá starfsfólki fyrirtækisins. Á mótinu 2010 störfuðu alls um 20 manns á vegum KFC í Skeifunni, í Víkinni og við akstur milli staða, auk sjálfboðaliða á mótsstað. Kentuckymótin eru afar líflegar og skemmtilegar samkomur, sem KFC er heiður af að hafa átt þátt í að stofna til. Iðkendur eru ánægðir og foreldrarnir ekki síður. Mörg hlý orð falla hjá gestum þegar þeir hverfa að vettvangi eftir kjúklingaveisluna, sem vel að merkja Pepsi og stærstu kjúklingaframleiðendur landsins (Ísfugl, Móar og Reykjagarður) styðja líka með framlagi sínu.
Við segjum á móti: Verði ykkur að góðu og takk fyrir komuna!
Smellið hér fyrir myndir frá KFC-mótum frá 2003 til 2010.
Ljósmyndari: Atli Rúnar Halldórsson.