Með KFC appinu getur þú skoðað matseðil KFC, valið á hvaða stað þú sækir og pantað.
Þú getur breytt réttunum eftir þínu höfði, til dæmis tekið kálið af borgaranum, bætt við beikoni eða valið annað meðlæti.
Uppáhaldsvörur og uppáhaldspantanir vistar þú með hjartanu og finnur þær aftur undir Mitt KFC, svo það er fljótlegt að panta það sama aftur.
Verð sem sjást á myndunum hér fyrir neðan eru aðeins dæmi og geta breyst.
Ýttu á Aðgangur neðst á skjánum og veldu Skrá inn eða Nýskráning.
Til að skrá þig inn slærðu inn símanúmerið þitt og ýtir á Í lagi. Símanúmerið þarf til að ljúka pöntun.
Í nýskráningu fyllir þú út símanúmer, nafn og tölvupóstfang. Heimilisfang er valfrjálst. Með skráningunni samþykkir þú skilmála KFC.
1. Veldu stað. Á forsíðunni velur þú hvar þú vilt sækja pöntunina. Undir Staðirnir sérðu alla veitingastaði KFC með heimilisfangi og opnunartíma.
2. Veldu af matseðlinum. Veldu flokk, til dæmis Máltíðir, og svo réttinn sem þú vilt.
3. Breyttu réttinum. Á vörusíðunni velur þú meðlæti og drykk. Með Breyta getur þú breytt innihaldinu. Hér er Hrásalat valið sem meðlæti, kálið tekið af borgaranum og beikoni bætt við. Ýttu svo á Setja í körfu neðst.
4. Kláraðu pöntunina. Í körfunni, Pöntunin þín, sérðu pöntunina með öllum breytingum. Ýttu á Ganga frá pöntun til að klára.
Undir Mitt KFC neðst á skjánum finnur þú Eftirlæti vörur, Eftirlæti pantanir, Pöntunarsögu og Greiðsluupplýsingar.
Vistaðu pöntun. Ýttu á hjartað efst í körfunni til að vista pöntunina sem uppáhald. Hún birtist þá undir Eftirlæti pantanir. Opnaðu hana og ýttu á Bæta í körfu til að panta það sama aftur.
Vistaðu vöru. Á sama hátt vistar þú einstakar vörur með hjartanu á vörusíðunni og finnur þær undir Eftirlæti vörur.